Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Sýningarþjálfanir á Korputorgi

Við viljum minna á sýningarþjálfanir sem eru haldnar í Gæludýr.is á Korputorgi.
Það eru nokkrar deildir innan HRFÍ sem hafa sótt um að hafa þjálfanir hjá okkur og að sjálfsögðu tökum við þeim fagnandi hendi.
Tímasetningar má nálgast hjá deildunum.

Svo viljum við minna á Generalprufuna sem Smáhundadeildin heldur í annað sinn. Að þessu sinni verður hún 18 febrúar.
Dómarar eru ekki af verri endanum og verður þetta mikil skemmtun og æfing fyrir sýnendur og hunda.
Allir velkomnir að koma að horfa á.

Kveðja.
Starfsfólkið ykkar


Við höfum opnað nýja búð á Smáratorgi!

Við höfum opnað aðra búð í Smáratorgi. Hún er við hliðiná Bónus.

Búðin er jafn stór og jafn glæsileg og búðin okkar á Korputorgi.

Við deilum sama húsnæði og A4 svo að það ætti ekki að vera erfitt að finna okkur.

Það eru að sjálfsögðu allir velkomnir til okkar bæði tvífætlingar og fjórfætlingar.

Við gefum meira að segja fjórfætlingunum smá nammibita sem kíkja á okkur.

Kær kveðja.
Starfsfólk Gæludýr.is


Korputorg 3 ára - Risa Afmælisboð

korputorg-3-ara-bannerKorputorg fagnar 3 ára afmæli dagana 6-9 október með frábærum tilboðum í öllum verslunum. Blöðrur og nammi fyrir börnin meðan birgðir endast.

Í gæludýr.is verða eftirfarandi tilboð í gangi alla helgina:

Rena 60 fiskabúr ásamt öllum fylgihlutum s.s. hitara, ljósi, dælu og bætiefnum á 30% afslætti Verð kr. 13.900.- verð áður kr. 19.900.-

Supreme kanínu, naggrísa og hamstrafóður í öllum stærðum 850gr, 2,5 kg og 15 kg á 25% afslætti

Pura Kattasandur 10 kg með 20% afslætti. Verð kr. 1.900.- verð áður 2.313.-

20% afsláttur af öllum hundabælum.

25% afsláttur af öllum Hunter Retriever taumum og ólum.

Verið velkomin á Risa Afmælisboð Korputorgs - sjáumst


Ódýrt og gott fyrir Labrador hvolpinn

Royal-Canin_lítill

Núna er tilboð á Labrador Junior 12 kg. tegundafóðrinu frá ROYAL CANIN í verlunum Gæludýr.is

Tilboðsverð kr. 10.616  

Skoðið nánar á vefsíðu Gæludýr.is og fáið sent frítt heim að dyrum.


Naggrísadagur í Gæludýr.is á laugardag

naggrísadagur Á morgun laugardag verður naggrísafjör í verslun Gæludýr.is að Korputorgi milli kl. 12 - 18.

Ræktendur og þaulvanir eigendur naggrísa veita fræðslu og upplýsingar um þessi yndislegu, mjúku gæludýr og gefst gestum og gangandi kostur á að klappa og fá að halda á naggrísum í leiðinni.

Bara gaman fyrir alla fjölskylduna - Allir velkomnir!


Frí heilsufarsráðgjöf fyrir gæludýrin

Freyja Kristinsdóttir Dýralæknir verður með ókeypis dýralæknaráðgjöf í verslun Gæludýr.is á Korputorgi í dag laugardag milli kl. 12:30 - 14:30. Allir geta þá komið með dýrin sín í viktun og almenna heilsufarsráðgjöf sér að kostnaðar lausu.

Jafnframt verður kynning hjá Sleðahundaklúbbi Íslands bæði í sal og fyrir utan verslun okkar milli kl. 12:30 - 14:30 í dag laugardag og milli kl. 14-16 sunnudag. Börnin geta þá farið í stuttar sleðaferðir þar sem hundarnir draga og hægt verður að kynna sér starfsemi klúbbsins ásamt því að hitta hundana. 

Allir velkomnir í Gæludýr.is 

Kveðja,
Starfsfólk Gæludýr.is


Pet Head frá Bad Head komið í Gæludýr.is

PetHeadLogoNú eru Pet Head feldsnyrtivörurnar frá Bad Head fáanlegar í Gæludýr.is.

Hágæða feldsnyrtivörur fyrir hunda og ketti er nú fáanleg frá Bad Head - Hátísku vörulína fyrir töff dýr sem inniheldur sjampó, hárnæringar og sprey svo þú og fjórfætti vinur þinn getið verið í stíl.

Flott vara - frábær gæði - góður ilmur og kátir fjórfættlingar.

 

Varan er einnig komin í vefverslun Gæludýr.is http://www.gaeludyr.is/hundasnyrtivoerur/pet-head-grooming/ og því hægt að fá sent frítt heima á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.

Gæludýr.is - Einfaldlega ódýrari

Kveðja,

Starfsfólk Gæludýr.is


Langar þig í flotta mynd?

ljosmyndari_banner

Ljósmyndari verður í Gæludýr.is Korputorgi á morgun laugardag 5. febrúar milli 13-15. Þá geta allir komið með dýrin sín í ljósmyndun hjá fagljósmyndara frítt. Nýtið þetta einstaka tækifæri til að fá fallega mynd af gæludýrinu þínu. Öll dýr velkomin

Kveðja,
Starfsfólk Gæludýr.is


Hundafimi í Gæludýr.is á laugardag

HundafimiHundafimisýning á vegum Íþróttadeildar HRFÍ verður í Gæludýr.is Korputorgi á laugardaginn 29 janúar næstkomandi kl 14. Eftir sýninguna býðst hundunum ykkar að prófa brautina. Kæru viðskiptavinir, ekki láta þetta fram hjá ykkur fara :) Hundafimi er frábær skemtun fyrir hundana.

 Kv. Starfsfólk Gæludýr.is 


Næsta byrjendanámskeið í sýningaþjálfun

facebook_iconNæsta byrjendnanámskeið í sýningaþjálfun hefst mánudaginn 31. janúar í salnum hjá Gæludýr.is Korputorgi. Námskeiðið skiptist í tvö skipti eða mánudag milli 19-21 og miðvikudaginn 2. febrúar frá 19-21.

Námskeiðið halda þær Þorbjörg Ásta og Auður Sif og kostar kr. 7.500.- fyrir bæði kvöldin eða alls 6 klst. Hægt er að skrá sig hjá Þorbjörgu í síma. 844-0851 eða senda tölvupóst á thorbjorgleifs@gmail.com

 

Mættu klár á næstu sýningu Hundaræktunarfélags Íslands!

Með kveðju,
Starfsfólk Gæludýr.is


Næsta síða »

Höfundur

Gæludýr.is
Gæludýr.is
Gæludýr.is er lágvöruverðsverslun með gæludýravörur á netinu. Hér mun starfsfólk blogga um ýmislegt sem tengist fyrirtækinu, verslun þess á netinu og vörum sem og annað tengt gæludýrum

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband