Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Gæludýr.is

Hundafjör í verslun Gæludýr.is

Geispandi hundurSannkallað hundafjör var í verslun Gæludýr.is að Korputorgi í gær (laugardag). Fjölmargir lögðu þá leið sína í verslunina til okkar til að fá myndatöku af dýrunum sínum frítt.

Við látum fylgja eina skemmtilega mynd með sem kom úr myndatökunni en þetta er hún Gloría sem naut þess að geyspa meðan myndarinn okkar smellti af.Schnauzer

Jafnframt komu Schnauzerar og Shi Tzu í heimsókn til okkar í sýningaþjálfun í salnum okkar að Korputorgi.

Sem sagt mikið hundafjör í Gæludýr.is Korputorgi.

Við elskum öll dýr og bjóðum öll gæludýr velkomin í Gæludýr.isshi_Tzu

Kveðja,

Starfsfólk Gæludýr.is


Kötturinn Birta kemur í heimsókn á laugardag

Birta brött og bleikKötturinn Birta kemur í heimsókn til okkar á Korputorg laugardaginn 4. desember milli 14-16. Þar mun Birta ásamt eiganda sínum kynna nýútkomna bók þeirra "Birta - brött og bleik".
Birta brött og bleik er fyndin saga með fallegum boðskap. Birta verður fyrir einelti og fordómum vegna þess að hún er öðruvísi en hinir kettirnir. Getur hárlaus og bleikur köttur passað inn í hópinn? Getur köttur leikið hundakúnstir? Geta hundar og kettir verið vinir? Birta brött og bleik veit svarið. 

Í tilefni af útkomu bókarinnar verður hún seld á kynningaverði alla helgina hjá okkur í Gæludýr.is - Korputorgi.
Birta bíður alla velkomna.


10% "1000 vina" afsláttur í vefverslun fram á föstudag

facebook-logoÍ tilefni af því að leik gæludýr.is á Facebook er lokið og 1000 vina markmiðið náðist þá verður 10% afsláttur af öllum vörum í verslun okkar fram á föstudag. Kærar þakkir fyrir hjálpina kæru Facebook vinir.

Kíktu á okkur á Facebook

Með vinakveðju Starfsfólk Gæludýr.is


Enn tími til að gera góð kaup á fiskabúrum - Allt að 30% Afsláttur

Juwel logoVið minnum á Juwel fiskabúratilboðið á heimasíðu okkar. Allt að 30% afsláttur á Juwel fiskabúrum og skápum. Tilboðin gilda til kl. 24 í kvöld.

Juwel fiskabúrin eru hágæða fiskabúr framleidd í Þýskalandi. Öll fiskabúrin koma með innbyggðum hreinsibúnaði, ljósum og hitara. Fiskabúrin er mjög þæginleg í allri umhirðu og eru mikið príði hvar sem þau eru sett upp

Skoðið úrvalið á heimasíðu okkar  á Gæludýr.is


Akureyringar - frí heimsending á morgun

Akureyringar við minnum á að pantanir sem berast okkur fyrir klukkan 2 á þriðjudögum (í dag) eru keyrðar frítt heim á morgun milli 17-20. Hægt er að greiða við móttöku pantana með peningum, kredit eða debetkorti.  Wink


Við segjum stopp við hækkandi verði.

StopGæludýr.is heldur út virkri verðsamkeppni og gerir reglulega verðkannanir meðal samkeppnisaðila. Þetta gerum við til að tryggja viðskiptavinum okkar bestu verðin sem bjóðast hverju sinni. Við hvetjum fólk til að gera verðsamanburð og koma með ábendingar ef betur má fara í þessum efnum.

Markmið okkar eru skýr - að bjóða alltaf bestu kaupin.

Síðasta verðkönnun okkar var framkvæmd 12. febrúar síðastliðin og er það ánægjulegt að sjá þau viðbrögð sem samkeppnisaðilar okkar hafa sýnt í verki en þónokkuð var um lækkandi verð meðal þeirra. Af þessu tilefni höfum við gert leiðréttingar á verðum á síðu okkar til að standa undir því loforði sem við gefum "Að bjóða alltaf bestu kaupin".  
Helstu lækkanir á verði voru í hunda og kattafóðri og hafa verðin á Gæludýr.is verið leiðrétt eins og áður sagði.

Með kveðju,
Starfsfólk Gæludýr.is


Við leitum af dýravinum á Facebook

facebook_logoGæludýr.is er alltaf að leita af dýravinum til að deila með einhverjum skemtilegum sögum, myndum og einstökum tilboðum af heimasíðu okkar. Til að vingast við sem flesta dýravini höfum við sett smá vinasöfnun af stað inni á facebook síðunni okkar

http://www.facebook.com/profile.php?id=100000735403288&ref=ts

Vinir okkar á facebook eru okkur afar kærir og til að sýna vinskap okkar í verki munum við bjóða sérstök tilboð til allra okkar vina reglulega á síðunni. Við hjá Gæludýr.is höfum sett okkur markmið um að vingast við 1000 dýravini fram á miðvikudag næstkomandi og mun einhver heppinn vinur fá 10.000.- vinagjöf frá Gæludýr.is sem hægt er að nota í vefverslun okkar náist þetta markmið okkar.


Fyrsta fría heimkeyrslan á Akureyri

c_documents_and_settings_gulli_my_documents_my_pictures_akureyri_-faas_a_akureyri_2006-11-21_29Núna á miðvikudag síðastliðinn var fyrsta frí heimkeyrsla Gæludýr.is á Akureyri. Móttökurnar vöru mjög jákvæðar og viðskiptavinir ánægðir með að fá vöruna senda heim að dyrum. Starfsfólki Gæludýr.is hlakkar til að þjóna bæði nýum og eldri viðskiptavinum sínum á Akureyri með enn betri þjónustu í framtíðinni.

Við viljum minna viðskiptavini okkar á Akureyri á að FRÍ heimsending er alla miðvikudaga milli kl. 17-20. Áfram verður þó hægt að fá vörurnar sendar með pósti ef fólk kýs það frekar en Gæludýr.is getur ekki boðið það frítt.


Nú sendum við frítt heim á Akureyri

gaeludyr_logo_netGæludýr.is hefur bætt Akureyringum við í fría heimsendingu. Gæludýraeigendur á Akureyri geta nú pantaða af heimasíðu okkar og fengið vöruna senda heim að dyrum þeim að kostnaðarlausu. Við þetta bætist að Akureyringar geta greitt við afhentingu vörunnar hvort heldur með kreditkorti eða Debetkorti. Við bjóðum Akureyringa velkomna í þessa þjónustu.

Panta þarf fyrir kl. 14 á þriðjudögum og er þá keyrt með vörur alla miðvikudaga milli kl. 17-19.

Kveðja,
Starfsfólk Gæludýr.is


Sparaðu bílinn og fáðu sent frítt heim

Hjá Gæludýr.is getur þú pantað allt fyrir gæludýrin og fengið sent frítt heim samdægurs sértu búsettur á höfuðborgarsvæðinu. Sparaðu pening, tíma og fyrirhöfn og verslaðu ódýrara á netinu.

Kveðja,
Starfsfólk Gæludýr.is


mbl.is Enn hækkar eldsneytið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Gæludýr.is
Gæludýr.is
Gæludýr.is er lágvöruverðsverslun með gæludýravörur á netinu. Hér mun starfsfólk blogga um ýmislegt sem tengist fyrirtækinu, verslun þess á netinu og vörum sem og annað tengt gæludýrum

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband