Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Fiskablogg

Algizit - Vörukynning vikunnar fyrir fiskafólk

AlgizitAlgizit - Og þú losnar við þörungana

Þörungavandamál er eitthvað sem allir þekkja sem hafa einhvern tímann haft eitthvað með fiskabúr að gera enda er það náttúrulegt í eðli sínu þegar vatn og ljós fer saman. Fallegustu fiskabúr geta þannig orðið yfirtekin af þessari óværu til mikillar armæðu fyrir fiskamanninn. Tetra hefur fundið svarið við því!

Algizit inniheldur mjög virk efni sem vinna gegn öllum illvinnandi þörungum eins og svörtum brúsk-þörungum og hárþörungum sem gjarnir eru á að yfirtaka allt búrið. Efnið er skaðlaust lífríki búrsins og hefur ekki áhrif á fiska né plöntur heldur gerir nákvæmlega það sem það á að gera - nefnilega að drepa niður þörunga og þörungamyndun.

Pakkinn inniheldur 10 uppleysanlegar töflur sem ekki lita vatn búrsins. Skömmtun miðast við 1 töflu á hverja 20 lítra vatns og er töflunum komið fyrir í dælubúnaði eða á botni búrsins þar sem þær leysast upp með tímanum. Virkni taflanna eru c.a. 6 vikur og er ráðlagt að endurnýja skammtinn meðan enn er þörungur.

Varan er á kynningartilboði til 1. febrúar í vefverslun Gæludýr.is og kostar kr. 590.-
Þú sparar ómælda vinnu og 150 kr. á hverjum pakka.

Skoða vöruna nánar og/eða versla á Gæludýr.is


54 lítra fiskabúr - Jólagjöfin í barnaherbergið

60300Fiskabúrin frá Juwel eru þýsk gæðaframleiðsla sem framleidd hafa verið í yfir 30 ár. Helsti kostur Juwel búranna er hreinsibúnaður þeirra en hann er í senn einfaldur en öflugur hreinsibúnaður sem auðvelt og fljótlegt er að viðhalda. Þessi einfaldleiki gerir börnunum kleift að taka þátt í og jafnvel sinna viðhaldinu sjálf en það er náttúrulega hluti af ánægju þess að vera með fiska í búri.

Rekord 60 er tilvalið fiskabúr í barnaherbergið. Fiskabúrið er glerbúr og kemur með loki, ljósi, hreinsidælu og hitara og er því alveg tilbúið fyrir utan fiska, sand og skraut. Stærðin á búrinu er lengd 61cm x breidd 31cm x hæð  38 cm og passar það því vel á t.d. kommóður eða hillur í barnaherberginu en standurinn á myndinni fylgir ekki með. Hægt er að kaupa standinn aukalega.

Þetta fiskabúr er á tilboði í verslun Gæludýr.is fram að jólum og kostar 14.900.- en hægt er að skoða það nánar með því að smella hér! A.t.h. að skápar og standar eru seldir sér!

 


Höfundur

Gæludýr.is
Gæludýr.is
Gæludýr.is er lágvöruverðsverslun með gæludýravörur á netinu. Hér mun starfsfólk blogga um ýmislegt sem tengist fyrirtækinu, verslun þess á netinu og vörum sem og annað tengt gæludýrum

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband