Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Leggjum Kattholti lið

Rekstur Kattholts hefur verið í járnum undanfarin misseri og því hefur Gæludýr.is ákveðið að leggja starfseminni lið með söfnunarátaki undir yfirskriftinni „Leggjum Kattholti lið“. Starfsemi Kattholts hefur löngu sannað sig á þeim tæpum 20 árum sem rekstur þess hefur staðið yfir og ófáir kettir og eigendur sem notið hafa góðs af velvilja kattavinanna á þeim bænum. Róðurinn hefur hinsvegar þyngst til muna undanfarið vegna hækkandi verðs á fóðri og öðrum aðföngum sem reksturinn þarfnast en þeir eru margir þrátt fyrir að um sjálfboðavinnu sé að ræða og því orðið tvísýnt um framtíð Kattholts. Af þessum sökum mun Gæludýr.is fara af stað með að selja kattaleikfang, 3 mýs í poka, á 1.000 kr en upphæðin rennur óskipt til starfsemi Kattholts. Hægt er að kaupa mýsnar í vefverslun Gæludýr.is á slóðinni http://www.gaeludyr.is/leggjum-kattholti-lio/musin-til-styrktar-kattholti.html eða í verslun Gæludýr.is að Skútuvogi 13.  Átakið mun hefjast 1.júní næstkomandi og standa yfir út júnímánuð.

Gæludýr.is setur velferð dýranna í fyrsta sæti og rekur styrktarsjóð þar sem hluti veltu fyrirtækisins rennur beint til úthlutunar á þörfum málefnum tendgum gæludýrum. Með þessu móti viljum við hjá Gæludýr.is bæta velferð gæludýra á Íslandi og gefa aftur til samfélagsins. Við höfum notið starfsemi Kattholts og viljum eiga kost á að gera það áfram og því er þetta tilvalið tækifæri til að nýta fyrsta styrkinn sem fyrirtækið veitir úr styrktarsjóð sínum. Við leggjum til leikfangið og kostum auglýsingarnar í tengslum við átakið og því mun Kattholt ekki taka á sig neinn kostnað í tengslum við þetta átak heldur einungis njóta góðs af góðverkum þeirra dýravina sem leggja Kattholti lið.

Fyrir þá sem vilja styrkja starfsemi Kattholts beint bendum við á heimasíðuna www.kattholt.is 

Með kveðju,

Starfsfólk Gæludýr.is 


Sparnaður fyrir Akureyringa!!!

Við minnum Akureyringa á að panta þarf fyrir kl. 14 í dag (þriðjudag) til að nýta sér fría heimsendingu milli 17-20 á Akureyri á morgun.

Kveðja,
Starfsfólk Gæludýr.is


Höfundur

Gæludýr.is
Gæludýr.is
Gæludýr.is er lágvöruverðsverslun með gæludýravörur á netinu. Hér mun starfsfólk blogga um ýmislegt sem tengist fyrirtækinu, verslun þess á netinu og vörum sem og annað tengt gæludýrum

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband